YFIRLIT:
Hvernig á að velja og panta vöru?
- Panta með sniðmáti
- Panta eftir vöru
- Panta eftir lykilorði
Verslunarkarfa
- Hvernig á að breyta magni í pöntun?
- Hvernig á að fjarlægja vöru úr pöntun?
- Hvernig á að fara til baka í verslunarkörfu?
- Hvernig á að bæta við vörum í verslunarkörfu?
- Hvernig á að ljúka pöntun?
Ganga frá kaupum
Leiðbeiningar um hönnun stimpils
- Búa til sniðmát
- Slá inn texta
- Millibil
- Staðsetja línur
- Rammar
- Myndir
Val á útliti vöru
Aðgangsstillingar
Manstu ekki lykilorðið?
Manstu ekki notandanafnið?
Viðhald á aðgangsstillingum og breyting á lykilorði
Oft spurt um
Hvernig virkar vöruleitin?
Hvar finn ég eldri pantanir? (pöntunarsaga)
Hvað með gagnaöryggi?
Vara vikunnar
HVERNIG Á AÐ VELJA OG PANTA VÖRU
Það eru nokkrar leiðir til að panta vöru:
1. PANTA MEÐ SNIÐMÁTI: Þú velur sniðmát sem líkist textanum sem þú vilt hafa á stimplinum. Varan verður búin til í samræmi við það.
2. PANTA EFTIR VÖRU: Með því að fletta í gegnum vörulista og velja vörur úr vöruflokkum og bæta í körfu.
3. PANTA EFTIR LYKILORÐI: Sláðu inn vörunúmer, vörukóða eða vöruheiti. Kerfið leitar í vörulistanum og birtir vörur sem passa við leit.
1. PANTA MEÐ SNIÐMÁTI
1. Smelltu á Sniðmát/Sýnishorn og veldu vöruflokk. Þá birtast sniðmát sem sýna mismunandi útfærslur og jafnvel mismunandi stærð á texta. Ef þú hefur vistað þín eigin sniðmát sem skráður notandi, þá finnurðu þau undir flipanum sem merktur er „þín sniðmát“.
2. Þegar smellt er á sniðmát, birtist listi af vörum (stimplum) sem passa fyrir textann þinn (+/- 10% af stærð textans). Þegar þú hefur valið vöruna sem þú vilt, fer í gang sérstakt hjálparforrit sem gerir þér kleift að hanna textann eins og þú vilt hafa hann.
2. PANTA EFTIR VÖRU
Smelltu á vöruleit hnappinn. Smelltu á nafn vöruflokksins sem þú vilt kaupa úr. Veldu vöru úr vöruflokknum og smelltu á „panta“.
Það eru tveir mögulegir valkostir fyrir vörur með sérhönnuðum texta:
A) Þú lendir á síðu með einu eða fleiri sniðmátum. Ef þú hefur þegar vistað sniðmát sem skráður notandi, þá sérðu þau þarna. Veldu síðan sniðmát eða smelltu á „stofna nýtt“ til að fara á „breyta sniðmáti“ síðuna. Þú getur síðan búið til þitt eigið sniðmát þarna.
B) Ef það eru engin sniðmát til fyrir vöruna sem þú valdir, þá fer panta hnappurinn með þig beint í hönnunarforritið.
Það eru líka tveir mögulegir valkostir fyrir vöru án sérhannaðs texta.
A) Þú lendir á „valmöguleikar“ síðunni. Eftir að þú hefur valið afbrigðið á vörunni sem þú vilt, smelltu þá á „velja“ til að bæta vörunni í körfu.
B) Þú lendir á körfu síðunni þegar þú velur vöruna án afbrigðis.
3. PANTA EFTIR LYKILORÐI
Ef þú veist vörunúmerið á vörunni sem þú vilt panta, þá geturðu slegið það inn í PANTA EFTIR LYKILORÐI hlutanum. Sláðu inn vörunúmerið eða vöruheitið og smelltu á „halda áfram“. Þú lendir á körfu síðunni, þar sem þú getur bætt við fleiri vörum með því að nota aðgerðir sem eru neðst á síðunni.
Athugið: Ekki er hægt að bæta einsökum vörum beint í körfuna – annað hvort birtist val af sniðmátum eða þú ferð beint á „breyta sniðmáti“ síðuna.
VERSLUNARKARFA
Hvernig á að breyta magni í pöntun?
Á verslunarsíðunni geturðu breytt fjölda af vörum í pöntun eða eytt vöru úr pöntuninni. Eftir að þú hefur gert breytingar er nauðsynlegt að smella á „uppfæra körfu“ til að sjá leiðrétta samtölu.
Hvernig á að fjarlægja vöru úr pöntun?
Þú getur eytt vöru úr körfunni með því að smella á „fjarlægja“ tengilinn fyrir neðan undirsummuna. Eftir að breyting hefur verið gerð er nauðsynlegt að smella á „uppfæra körfu“ til að sjá leiðrétta samtölu.
Hvernig á að fara til baka í verslunarkörfu?
Þú getur farið til baka á síðuna með því að smella á körfu hnappinn sem er efst.
Hvernig á að bæta við vörum í verslunarkörfu?
Þegar þú ert á verslunarkörfu síðunni, þá geturðu haldið áfram að versla með því að smella á „versla meira“ hnappinn eða forsíðu hnappinn. Þetta fer með þig fremst í vörulistann.
Í hvert skipti sem þú smellir á „panta“ hnappinn, þá lendirðu á verslunarkörfu síðunni og vörurnar verða vistaðar.
Jafnframt geturðu bætt athugasemdum við pöntunina. Endilega notið tengilinn „leiðbeiningar“.
Yfirfarið pöntun vandlega!
Hvernig á að ljúka pöntun?
Ef allar vörur eru komnar í körfuna og þú hefur slegið inn rétt magn (munið að uppfæra körfu), þá er nóg að smella á „ganga frá kaupum“ (sem skráður notandi) til að ljúka við pöntunina. Ef þú ert óskráður notandi þá verður þér beint á síðu þar sem þú þarft að skrá þig inn áður en þú gengur frá kaupum. Eftir að þú hefur skráð þig inn, verður þér beint aftur á réttan stað til að ljúka við pöntunina.
Ganga frá kaupum
Þú getur breytt aðgangsstillingum þínum hér. Jafnframt er þetta síðasti möguleikinn á að fjarlægja vörur úr körfunni. Vinsamlegast notið fellivalmyndina til að velja sendingarmáta. Neðst á síðunni geturðu síðan skilgreint greiðsluskilmála.
Til að ganga endanlega frá kaupum, smellið á „staðfesta pöntun“.
Leiðbeiningar um hönnun stimpils
Búa til sniðmát
Þú getur búið til þinn eigin stimpil á þessari síðu. Þú getur skoðað breytingar þínar með því að smella á „uppfæra sýnishorn“ hnappinn. Með því að nota fellivalmyndina, þá geturðu breytt stærðinni á sýnishorninu.
Á sumum vörum þá er valmöguleiki á að breyta lit hennar eða afbrigði. Smellið á velja hnappinn („Bleklitur, Vörulitur“) sem er til vinstri á síðunni.
Einnig eru hnapparnir „minni stimpill“ og „stærri stimpill“ stundum sýnilegir. Smellið á annan hvorn hnappinn til að fara sjálfkrafa í minni/stærri vöru í sama vöruflokk. Vinsamlegast athugið hvort að rétt vara birtist.
Eftir því hvaða vara er valin þá birtast valkostir í formi flipa. Ef þú skiptir á milli flipa þá vistast útlitið sjálfkrafa og sýnishornið uppfærist.
Slá inn texta
Hér veljið þið letur, leturstærð, staðsetningu og valmöguleika eins og feitletrun, skáletrun og undirstrikun. Blaðsíða með sýnishornum af leturgerðum birtist ef þú smellir á „Letur sýnishorn“ tengilinn.
Athugið: Notið "uppfæra sýnishorn " reglulega. Aðvörunartexti birtist ef textinn eða ramminn er of stór.
Millibil
Þú getur staðsett textann þinn hér, lárétt og lóðrétt (t.d. -3 pts eða 10 pts.)
Staðsetja línur
Gerir þér kleift að staðsetja línur lóðrétt og lárétt.
Rammar
Búa til mismunandi form og þykkt af römmum.
Myndir
Hér geturðu hlaðið inn lógó eða mynd af harða diskinum. Nauðsynlegt er að skráin sé á Bitmap formi (.bmp).
Fyrir sumar vörur (nafnspjöld…) er líka leyfilegt að hlaða inn lógó og myndum í lit (.jpeg - 24 Bit aðeins).
Þú hefur líka möguleika á að breyta stærð á upprunalegu myndinni (í prósentum). Þú verður að vera skráður inn sem notandi til að geta hlaðið inn myndum. Myndir verða vistaðar fyrir frekari notkun. Eftir vefverslunum þá geturðu skipt milli mynda með aðgerðunum „almennar myndir“ og „þínar myndir“.
Ef þú hefur lokið við að búa til þitt sniðmát, smelltu þá aftur á „uppfæra sýnishorn“ og smelltu síðan á panta. Á næstu síðu er síðasti möguleiki á að yfirfara sniðmátið. Ef þú vilt gera breytingar, geturðu farið aftur í síðustu útgáfu af sniðmátinu með því að smella á „til baka“ hnappinn (á síðunni, ekki í vefvafranum). Sem skráður notandi geturðu einnig vistað sniðmátið með því nafni sem þú vilt. Þú getur síðan notað þau í næstu pöntunum.
Sláðu bara inn nafn fyrir sniðmátið og smelltu á „vista og setja í körfu“ (sem skráður notandi). Ef þú ert ekki innskráður, smelltu þá á „setja í körfu“. Báðar leiðir liggja í verslunarkörfuna.
Val á útliti vöru
Hér geturðu valið hvernig varan á að líta út. Ef þú vilt velja annað afbrigði af vörunni, en ert búin(n) að gera sniðmát.
Til að velja afbrigðið sem þú vilt þá geturðu smellt á valhnapp (Radio Button) við vöruna sem þú vilt.
Til að þrengja leit að vöruafbrigði geturðu notað fellivalmyndina til að endurraða vöruafbrigðum.
Ef rétt vöruafbrigði er valið þá er punktur í hringnum við vöruafbrigðið. Til að fara aftur í „breyta sniðmáti“, smellið á „til baka“ hnappinn á síðunni (alls ekki nota til baka hnappinn sem tilheyrir vefvafranum – þá glatast breytingar).
Aðgangsstillingar
Manstu ekki lykilorðið?
Smelltu á „týnt lykilorð“ hnappinn á velkomin síðunni og sláðu inn notanda einkenni þitt. Þá færðu sendan tölvupóst með lykilorði þínu.
Manstu ekki notandanafnið?
Smelltu á „týnt lykilorð“ hnappinn og sendu tölvupóst á netfangið sem er sýnt þar. Notandanafn þitt verður þá sent í tölvupósti til þín.
Viðhald á aðgangsstilingum og breyting á lykilorði
Smelltu á „aðgangsstillingar“ efst í versluninni. Þú getur breytt lykilorði, uppfært nafnið og jafnvel breytt sendingar-og greiðsluupplýsingum.
Oft spurt um
Hvernig virkar vöruleitin?
Þú getur leitað eftir leitarorðum í versluninni. Sláðu bara inn leitarorð í leita reitnum. Smelltu síðan á vöru í listanum yfir vörur sem fundust, til að fara beint á viðkomandi vöru. Haltu síðan bara áfram með pöntunina.
Hvar finn ég eldri pantanir? (pöntunarsaga)
Smelltu á „Pöntunarsaga“ efst í versluninni. Hér geturðu skoðað allar fyrri pantanir og jafnvel notað þær til að endurpanta.
Hvað með gagnaöryggi?
Við notum Secure Sockets Layer (SSL) tæknina, sem er studd af flest öllum vefvöfrum á Internetinu. Þessi tækni sér sjálfkrafa um:
- Dulkóðar upplýsingar sem fara um Internetið.
- Sannreynir uppruna miðlarans með því að nota vottorð og stafræna undirskrift.
- Sannreynir að upprunalegt innihald skilaboða skili sér á réttan stað.
- SSL tæknin býður uppá fullkomnasta gagnaöryggi sem völ er á á Internetinu.
Vara vikunnar?
Vara vikunnar er vara sem lögð er áhersla á eða boðin á sérkjörum. Hún getur birst á forsíðunni. Ef þú ert skráður notandi, þá getur verið að vara vikunnar sé hugsuð fyrir þig. Smelltu bara á tengilinn til að setja vöruna í verslunarkörfuna.
Athugið: Ef þú ert með aðgang, gakktu þá úr skugga um að þú sért innskráður áður en þú ferð að fletta í vörulistanum. Skráðir notendur eru oft með sérverð og hafa aðgang að meira vöruúrvali.